Fjas og fleira ;)

föstudagur, júlí 29, 2005

Jess my darlings...
Þvílíkt ógeðslega myglaður dagur maður! Ég held ég hafi bara aldrei áður verið svona svakalega dofin í vinnunni, maður þarf að fara að passa betur uppá að fara að sofa á skikkanlegum tíma :) Hehh... Annars var þetta svosem allt í lagi fyrir utan það að ég var bara ein með 5 börn alveg frá 4 til hálf 5 og fólk var ekkert að sækja neitt óþarflega snemma... Var alveg að klepra yfir þessu skohh...
Annars henti ég nú bara öllum greyjunum í rólu og bara ýtti og ýtti þangað til foreldraskammirnar ákváðu að láta sjá sig hahha... :D
Já, nú er verslunarmannahelgin!! Fullt af fólki að hrúgast eitthvað út á land í ferðalög og útilegur og útihátíðir og fleira :)
Ég var nú alveg ákveðin í fyrra að ég skyldi sko skella mér til Eyja núna um versló þar sem ég fór ekki í fyrra eins og ég ætlaði, en þar sem bæði peningarnir voru sko EKKI til og svo bara var nenningurinn ekki til staðar hehhe :$ Ætla að reyna að vinna upp smá svefn þar sem ég er búin að vera ansi hreint dugleg að svindla á sjálfri mér að vaka svona endalaust fram á kvöldin og svo er ég bara alltaf þreyttari og þreyttari... Hehh, svo ég ætla að koma aftur tvíefld eftir helgina alveg endalaust svakalega hress :D Hahha... Eða svona í áttina allavega ;)
Svona líka ferlega góð á því, ætlaði beint að sofa þegar ég kæmi heim en þess í stað settist mín í stuðið að tékka á hvað ég hefði fengið útborgað fyrir þrælavinnuna mína og svo endaði ég bara með því að skrifa á síðuna og eitthvað og blasta Snoop Dogg í herberginu hans bróður míns... Allt í lagi, hann er að vinna til 19 hehhe ;)
En jæja, allir hafi það gott um helgina og endilega vera í bandi við Karó sín ;) Mér finnst alltaf gaman að heyra í fólkinu mínu! :D Hehehhe
Þar til næst...

fimmtudagur, júlí 28, 2005

Já jæja, þá er ég búin að skipta um útlit á síðunni, þó má fólk vera ansi hreint stolt af mér því að mér tókst að giska mig út úr því ALVEG EIN OG SJÁLF og óstudd með öllu! :D Hahahhahha... :D Setti inn alla linkana og allt! :D
Allavega, ég er hress, síðustu dagar eru búnir að vera soldið skrýtnir og ég er búin að vera soldið ólík sjálfri mér, en nú er þetta allt að koma sko, ég er alveg að komast aftur í fyrra horf og verða venjuleg aftur :)
Sem er mjög gott, nenni ekkert að vera með langa tjáningu, ætla ekki út úr bænum um helgina, verð í höfuðborginni bara í rúlígheden :)
Endilega samt þeir sem eru að fara að skella sér til Eyja eða á aðrar útihátíðir að hringja í mig og leyfa mér að heyra stemmarann soldið, það er alveg gaman ;) Hehhe... Já, og líka þeir sem verða í bænum, endilega leyfa mér að heyra af ykkur ;)
Bæ í bili :P

fimmtudagur, júlí 21, 2005

Já já... Ég veit ekki hvað mar á að segja, ég er bara eins og grillaður humar eftir síðastliðna daga í vinnunni... :P Hehhe.. En það er bara ok, ætla ekkert að kvarta... Já, ég er bara að fara að hætta á róló og skella mér attur á leikskólann minn, haldiðið ekki að eitt litla fræið mitt hafi bara heimtað að fá að fara á róló hjá mér núna í dag, ég var alveg í gúddí sko! :D Hehehehe... :D Um síðustu helgi var mín bara í góðum gír, djammaði AF mér lappirnar á föstudaginn og ég sver ég gat eiginlega ekkert djammað á laugardaginn þar sem ég var bara skemmd! :D En á föstudag var ég bara í stuðinu með góðu fólki sko ;) Allavega, bara að láta vita af mér að ég væri á lífi... Skjárinn á þessari tölvu er bara að brenna yfir svo ég ætla ð fara að hætta þessu ;)
Later darlings :P