Fjas og fleira ;)

mánudagur, júní 28, 2004

Jebb... Ég er eiginlega bara að nenna ekki að skrifa þessa dagana, á mig hefur lagst þessi sumarleti sem leggst á svo marga aðra bloggara landsins... :) En er það ekki bara allt í lagi.. ? Jújú... Svara bara sjálfri mér þar sem ég býst ekki beint við svörum frá neinum öðrum... En já, það var alveg stuð í vinnunni í dag og svona, lítið að gerast fyrir utan vinnu, ég sit og tel niður klukkustundir nánast þangað til að verður útborgað, mín er alveg að hlakka til að fá nýjann síma til dæmis og svo náttúrulega langþráð klipping og litun!!!! :D JEIJ!!!! En já, ég er að spá í að hafa þetta bara stutt í dag, nenni ekki meir, skal reyna að vera duglegri, ekki búast við árangri! ;) En ef þið eruð mjög ósátt (og þekkið mig eitthvað svona nokkurn veginn) þá megið þið hafa samband við mig gegnum síma eða tölvupóst... Eina skilyrðið er að það er bannað að skamma mig! ;) Bæjó :P

laugardagur, júní 19, 2004

Jú jú, ég var ekki lengi að ná mér í kvefpest þar sem ég er byrjuð að vinna með litlu krílin! :S En það er alveg þess virði að fá að vinna þessa vinnu... :) Annars er það nú ekki endir alls að verða kvefaður öðru hverju, nema svona þegar það hindrar mann í að fara á djammið! ;) Hehhe... Já, mér hafa borist kvartanir yfir því að ég sé löt að skrifa hér.. :$ Já, ég veit að það er satt, en bara hafið þolinmæði... Ég skal reyna að vera duglegri! ;) Já, það er bara búið að vera brjálað stuð á manni á þeim stutta tíma sem hefur liðið síðan við komumst í sumarfrí... Alveg nóg djammað og stuð og fjör á mannskapnum! :D Hehhe... ;) Annars er bara vinna og svefn það sem fylgir með þessu, á eftir er síðasta skipti sem ég fer að bera út!!! Já, það er rétt ég er hætt þessu, við vorum alveg komin með nóg sko... Enda var ég búin að vera í þessu í hálft ár!!!! :O Skýtið að hugsa til þess! ;) En á næstu önn ætla ég bara að reyna að fá mér vinnu að kvöldi til svona í stað þess að vakna alltaf klukkan 6, það er ekkert gaman ;) Hmm... Já, sautjándi júní var núna á fimmtudaginn og við skrepptum okkur á Rútstún í Kóp, en það er mjög kósý að vera þar og svo var líka svona hlý gola þar, en ég heyrði að það hefði verið ansi svalt niðri í bæ :) Já, mér fannst veðrið bara nokkuð gott sko, en þar sem ég var útúrmygluð eftir svaðilfarir kvöldsins áður þá fórum við bara heim og ég var bara heima um kvöldið, horfði á sjónvarp og fór svo að sofa! :) Þetta var bara hinn besti dagur... :) Já, það er alltaf jafn mikið stuð í vinnunni... Um daginn eignaðist ég lítinn aðdáanda sem er 10 ára og var að gefa mér steina og neitaði að tala við nokkurn mann nema mig, það var allt saman mjög sætt sko! :D Hahha... Svo er bara málið að skella sér í vinnuna á mánudaginn sama hvernig heilsan verður þar sem það eru reiknaðir fjórir veikindadagar á mig ef ég er veik föstudag og mánudag... Já, ég veit þetta er stúbbid en svona er bara kerfið og því verður ekki breytt :) Annars er nú bara fátt að frétta, allavega fátt sem maður vill eitthvað vera að skrifa hér á netið! ;) Hahhaha... :D En ég vona bara að fólk hafi samband, svo er náttúrulega brjálað stuð framundan, og ekkert minna... Og svo nálgast mánaðarmót óðfluga og ég skal sko segja ykkur það að ég get ekki beðið... Þá fær mín nýjann síma, klippingu og litun og margt, margt, margt fleira sem ég búin að bíða LEEEEENGI eftir! :D Hehhe... Svo að það verða hátíðarhöld hjá mér um mánaðarmótin ;) Jájájájájá... En núna ætla ég bara að hætta og koma mér í einhver hlý föt... Allavega svona skjólgóð þar sem ég þarf helst að fara út að bera út á eftir og er held ég ennþá með hita... :S En ég heyri vonandi í fólkinu... Allir að hafa samband við mig!!! ;) Gúddbæ... Vonast til að verða duglegri að skrifa í nánustu framtíð! ;D

sunnudagur, júní 06, 2004

Jæja, nú skammast ég mín... :$ Ekki búin að skrifa hér forever sko!! :S En jæja, það er kominn tími á þetta núna... Það hefur ýmislegt á daga mína drifið og það sem stendur hæst er að ég er byrjuð að vinna!! :D Byrjaði á þriðjudaginn síðasta og það er búið að vera stanslaust stuð! :D Allir krakkarnir mínir voða glaðir að hitta mig aftur og ég er sko búin að skemmta mér alveg konunglega í sandkassa og rólum og að ganga í barndóm á ný!! ;) Hehhehhe... :P Svo er nú skemmtilegt frá því að segja að ég mætti um daginn í Batman stuttermabol í vinnuna og í hvert einasta skipti sem einn litli guttinn labbaði framhjá mér þá heyrði ég hann muldra "Batmanbolur, batmanbolur...!!" Þetta var alveg óstjórnlega fyndið sko! :P Já, svo skellti maður sér aðeins niðrí bæ á föstudagskveldið í góðum félagsskap og kom ekki heim fyrr en klukkan 4... Vaknaði síðan klukkan 6 til að bera út... Hehhe... Sumir voru myglaðri en aðrir þá skal ég segja ykkur! ;) En já, annars er ég nú alveg að fá nóg af þessum útburði enda er á planinu að reyna að fá eitthvað annað að gera þá á kvöldin væntanlega á næstu önn, komin með nóg af því að vakna klukkan 6 sko... :) En já, annars er bara fátt að frétta og lítið að ske :D En fólki er alltaf meira en velkomið að vera í bandi við mig... :P Anyways, það er víst að koma að því að mar verði að borða eitthvað en ég reyni að skrifa aftur sem fyrst ;)