Fjas og fleira ;)

föstudagur, maí 30, 2003

Jæja góddaginn! :D Ég er að skrifa!!! :D VAAAAAAAAAAÁÁÁÁ hvað það er langt síðan ég hef skrifað eitthvað hér... Hmm... Það er nú alveg nóg búið að gerast, eins og það að á laugardaginn síðastliðinn fór ég í útskrift hjá Frænkunni með flottu einkunnirnar ;) og líka hjá frænda sem ég hef ekki séð mjög lengi og það var alveg afskaplega skemmtilegt... En það olli því að ég varð víst að sleppa að horfa á Eurovision, en við tókum öll herlegheitin upp og fannst mér Birgitta bara standa sig svakalega vel... Kom mér á óvart hvað þetta var flott hjá þeim... :) Anyways... Þá átti nú elskan mín hún Iglesias ammli núna um daginn og vil ég nota tækifærið og óska henni INNILEGA til hamingju!!! :* Love ya sæta mín!! ;) Og svo gerðist nú ýmislegt skemmtilegt fleira í vikunni, til dæmis má nefna það að ég og Nóttin, eða "eiginkonan" eins og sumir eru nú farnir að kalla hana ;), fórum á rúntinn nokkrum sinnum í vikunni og í eitt skiptið kipptum við Færeyska riddaranum með og var það svaka stuð eins og ávallt þegar hann er með í för! ;) Síðan í fyrradag bauð Krúsírúsínan mér í bíó á Anger management sem mér fannst alveg einstaklega skemmtileg og hló mikið! :D Eftir bíóið skelltum við Nóttin okkur á rúnt og ég varð bara alveg bandbrjáluð og gerði ýmislegt skemmtilegt... Og gerði mig nokkuð vel að fífli þarna, en það var bara svo skemmtilegt að það er aldrei að vita nema maður fari að stunda þessa iðju í sumar ;) Nehh... Samt ekki! :D En já, og þetta kvöld var alveg einstaklega skemmtilegt svona fyrir utan það að við vorum nú að leita að ákveðnum manni sem ég hafði verið að spjalla við í símann og fundum hann ekki... En það er bara allt í lagi... Hann er nú ekki merkilegur pappír svo að það þarf ekkert að vera að leita að honum! :D Síðan í gær átti maðurinn á kokteilsósubílnum ammili!!! :D Til hamingju með það!!! :* ;) Og hann hélt uppá það þar sem kom saman hópur af alveg einstaklega skemmtilegum einstaklingum (enda ég þar á meðal ;)) og fögnuðu því að maðurinn var að verða 19 ára! :D Og ég, eins fátæk og ég nú er varð bara að gefa honum svona bráðabirgðagjöf svo að ég útbjó smá pakka sem gekk undir nafninu "Afmælisgjöf frá fátækum námsmanni" en sú gjöf samanstóð af einum toffýsleikjó, tveimur fílakaramellum og svo Skyr.is með ferskjum og hindberjum og varð hann bara hinn kátasti með þá gjöf!! :D Þannig að ég var afskaplega kát með það! :D En já, þannig að allir vinir mínir sem hafa átt ammili í þessum mánuði fá svona síðbúna ammiligjöf frá mér í byrjun júlí! ;) Já, í kvöld er ég að fara að vera heima! :D Ótrúlegt en satt ætla ég bara ekki út úr húsi... :P Og er bara mjög sátt með það þar sem að það er alveg hellingur í sjónvarpinu í kvöld, þar á meðal uppáhalds þátturinn minn Friends og svo náttúrulega þátturinn sem ég elska svo mikið American Idol!!!! :D En ég ætla ekki að linka á þá síðu því að það er víst búið að koma úrslitaþátturinn úti og ég myndi nú ekki fara að plata ykkur út í að sjá úrslitin enda yrði ég alveg brjáluð ef einhver myndi skemma það fyrir mér! ;) En já, svo á morgun er enn önnur útskrift og svo svona eitthvað annað kveld sem verður mjög skemmtilegt ;) En já, svo er nú ein spurning sem ég er búin að vera að velta fyrir mér!!! Sko, í síðustu viku var sýndur þáttur á Stöð 2 sem heitir því skemmtilega nafni "Allt um vini" OK, og í þessum þætti voru tekin viðtöl við aðdáendur þáttanna og svona... AF HVERJU var ekki hringt í mig??!??! :O Jahh... Ég er allavega svona frekar móðguð út í þessa sjónvarpsstöð... En þó ekki nógu móðguð til að hætta að horfa því að þeir sýna svo mikið af þáttum sem ég DÝRKA, þar á meðal Nágranna sem eru BARA kúl sko! :D Já já, svo er ég að byrja að vinna á mánudaginn... Allt gott og blessað með það sko! :D Fara að vinna sér inn péninga! :D Ein svona skemmtileg saga í lokin... Ég og familian fórum á fimmtudegi síðastliðinnar viku að skoða útskriftargjafir... Svakalegt stuð, öllum troðið inn í bíl og brummað í Kringluna... Svo erum við búin að labba þarna um alveg heillengi og ég var nú reyndar búin að sjá BARA fallegasta mann jarðríkis að vinna í einni af verslunum þessarar göfugu verslunarmiðstöðvar áður en yfir lauk, nema hvað að ég er þarna inni í svona skartgripabúð og er að skoða eitthvað svona bara og sé eitthvað hálsmen sem var VÆNTANLEGA ætlað til skírnargjafa og segi svona í gríni við konuna við hliðina á mér sem ég hélt vera hina ástkæru móður mína "Hey við getum gefið svona mamma!!!" og sé þá mér til mikillar skelfingar að þetta er bara einhver ókunnug kona... svo að ég svona lét setninguna koma svona aflíðandi: "... sem er ekki hér..." Vitanlega hló konan svona soldið að mér, en ég bara ákvað að leyfa því að flakka og hugsaði bara að ég á aldrei eftir að sjá þessa manneskju framar svo þetta er allt í lagi ;) En þetta er orðið ALVEG nógu langt hjá mér í bili... Svo ég segi bara bæjó og ég læt ekki líða svona langt þangað til að ég skrifa næst... :*

mánudagur, maí 19, 2003

Jahh... Ég er nú búin að vera alveg horribly löt að skrifa núna upp á síðkastið, en það er rökrétt skýring á þessu ÖLLU saman... LETI!!! :D Það er skýringin... En annars er það af mér að frétta að ég heimsótti Draslið í vinnuna um daginn... Frétti að bróðir gamals fjarlægðarskots væri meðlimur í semi frægri hljómsveit hér á landi og svo margt margt fleira sem ég hreinlega NENNI EKKI að telja upp!! Jú jú, mikið rétt en það gerir letin! ;) Ég er að hugsa um að skrifa meira síðar, en til að hafa ofan af fyrir fólki með of mikinn tíma sér fyrir höndum mæli ég eindregið með Potum í augað á Alex!! Ég er einmitt búin að setja þessa snilldarsíðu í linkana mína hér til hliðar! :D Ekkert próf núna... Það er nóg af því hér til að endast aðeins ;) Bæjó... Í bili þó! :*

mánudagur, maí 12, 2003

Jó jó! ;) Bróðir minn kláraði samræmdu í dag... Heeví dullegur! ;) Og skreppti sér svo bara í óvissuferð svo að ég get með sanni sagt að ég hef ekki hugmynd um hvar hann er niðurkominn á þessari stundu! :D En aðal-gellan hún frænka mín kláraði líka í dag og það með stæl hugsa ég sko! :D Þannig að ég óska þeim innilega til hamingju með það!! :D Nú hef ég nú ekkert svakalegt meira að segja... Þannig að ég sýni ykkur þessa niðurstöðu hér:





I'm Rachel Green from Friends!

Take the Friends Quiz here.

created by stomps.





Það virðist ekki skipta neinu máli HVAR á hvaða síðu ég tek svona próf... ALLTAF fæ ég sömu útkomu!!!! Hvað skyldi það þýða??? :P

föstudagur, maí 09, 2003

Jamm... Nú er bara eitt próf eftir... Það er þjóðhagfræði og ég er ekki að hafa neinar svakalegar áhyggjur því að það eru heilir 5 dagar í prófið og það eru bara 3 verkefni til prófs. Nema hvað, nú eruð þið sem kíkið hér á kannski að velta fyrir ykkur hvernig í ósköpunum ég ætli eiginlega að koma mér í gegnum þetta svakalega magn af efni á þessum undraverða stutta tíma, en vegna yfirnáttúrulegra gáfna minna HELD ég að þetta bjargist! :D Jú jú, anyways, ég er búin að fá vinnu í sumar á gæsluvelli... Ekkert nema gott um það að segja sko! :D Í gærkveldi kíktum við svo á rúntinn ég, Nóttin, Byfi, Iglesias og Færeyska riddaranum! :D Einungis gaman að því.. Og í kvöld er ég nú bara að hugsa um að vera róleg heima því ég er bara ekki í stuði til að fara neitt út... :P Svo er nú planið að taka til að prófaruslið og draslið í herberginu og svona... Það er LÖNGU orðið tímabært.. En þar sem mig GRUNAR að það verði ekki sérlega skemmtilegt verk mega þeir sem vilja alveg endilega bjalla í mig eða senda mér sms svona til að halda mér vakandi við iðju mína ;) Hmm... Hvað er nú meira sem ég get sagt... ?? :P Ótrúlegt hvað maður getur verið hugmyndalaus... Jú, reyndar.. Svona til að vera ekki alveg hallærisleg þá verð ég nú að minnast á það að það eru kosningar á morgun... In case að það hafi farið fram hjá EINHVERJUM!!!! En ef það er einhver þarna sem er að lesa sem hefur EKKI tekið eftir því... Þá vil ég helst ekki vita hvar sú manneskja hefur verið grafin í jörðu núna upp á síðkastið!! :D Já, það er víst svona þegar maður er búin að vera í prófum svona þá bara er ekkert að segja því að það eina sem maður gerir er að lesa og lesa og það er nú ekki áhugavert að lesa um það!! :P En það er gaman frá því að segja að ég er búin að bæta við link hérna inná Turtles síðu sem er afskaplega skemmtilegt! :D Alveg um að gera að kíkja á það sko... ;) En nú er svo ekkert annað en bara skilja ykkur eftir hér... Með þessum myndarmanni! :D


Mr. Right seems to be Elijah Wood!


The Movie Star For You
brought to you by Quizilla

Hehhe ;) Gaman að því! :D:D Bæjó... Í bili þó! :* :P

mánudagur, maí 05, 2003

Jæja... Í miðju prófa stressi og rugli frétti ég það að elsku krúttið hann Gummi ætti AMMLI!!!!! Hugsiði ykkur! ;) Orðin sonna líka stór og sætur strákur! ;) Anyways, svo að ég ákvað bara að skella mér hér inná og segja TIL HAMINGJU MEÐ AMMLIÐ ELSKU GUMMI MINN!!!! :* Vona bara að hann hafi það OBBOLEGA fínt á ammlidaginn sinn!! :D Bæjó... Í bili þó! :*