Fjas og fleira ;)

sunnudagur, ágúst 24, 2003

Úff... Langt síðan síðast! :D Hlaupum bara hratt yfir sögu þá var verslunarmannahelgin, þá var mjög gaman og ég skemmti mér bara alveg konunglega í bænum að tjatta bara við gamla stellið ;) Svo hætti ég í vinnunni... :'( Langaði bara EKKERT til þess sko... :S En það var samt alveg mega sætt þegar einn lítill stubbur kom með blóm handa mér af því að ég var að hætta... Ég var alveg mjög glöð í litla hjartanu mínu! :D Svo var menningarnótt og þá skemmti ég mér svo konunglega að það er varla frá því segjandi, hitti fullt af fólki og vini sem ég hef ekki séð alveg í ár og daga og var alveg svakalega ánægð með það, og svo hittum við Byfi og Nóttin tvo gæja fyrir utan Hlöllabáta sem voru ansi hreint skrautlegir, enda var ég nú svo kræf að slá annann þeirra soldið svona á kollinn á honum því maðurinn dirfðist að kalla mig ónefni sem ég ætla ekkert að hafa eftir hér! :D En í lokin ákvað hann nú að ég væri alveg ágæt svona fyrst að ég þorði að "slást" við hann! :D Þetta fannst mér alveg hreint svakalega fyndið! :D Emm... Á föstudaginn fór ég barasta í skólann og líkaði það bara ekkert smá vel að koma þar aftur og nú er "litli" bróðir minn byrjaður þar líka... Sem mér fannst nú BARA fyndið! :D Um helgina er ég alveg búin að hafa það ágætt, í gær hringdi Nóttin í mig alveg úrkula vonar, umkringd ættingjum sem skildu hana ekkert og eitthvað svo að ég varð að koma mér af stað og skella mér í föt og fara í ammili til foreldra hennar svo að hún myndi nú ekki farast þarna! :D Og vildi svo skemmtilega til að ég kom bara heim með alveg hellings helling af kökum! Mamma hennar fáraðist þetta ekkert smá yfir hvað kökurnar væru subbulegar... En þær voru ekkert subbulegar og alveg SVAKALEGA góðar!!!! :D Og Frakklandsfarinn mætti á svæðið alveg eldhress og fékk hjá okkur kökur og sá nýja fína hebbiggið mitt! :D Gaman gaman... Svo í morgun tók ég mig til og lærði heima!!! Allir sem eru stoltir af mér rétt upp hönd ;) Já, nú ætla ég bara að hætta og gera eitthvað af viti... Eða allavega eitthvað... Veit nú ekki með vitið! ;) See ya later! ;)

laugardagur, ágúst 09, 2003

Já, ég er búin að vera afskaplega löt að blogga enda hef ég bara einfaldlega ekki nennt að fara í tölvuna, enda sumarið alveg að heilla mig hérna og ég bara búin að vera úti alveg helling, ólíkt mér ekki satt? Jú, ekkert smá, nema svona fyrir utan það að ég er að vinna úti!! Það eina sem mér finnst alveg ótrúlega leiðinlegt við að vinna úti er það að geitungarnir (sem mér finnast bara vera tilgangslausASTIR í heimi sko!!!!) elta mann um allt og þá sérstaklega þegar maður fer með börnin út að borða og þau eru með snúða aðra slíka óhollustu þá koma þeir fljúgandi og hanga utan í grey börnunum endalaust og látlaust!!! Alveg endalaust pirrandi þar sem að flestir eru hræddir við þetta ógeð og þeir sem ekki eru hræddir við þá taka yfirleitt uppá því að slá í þá og þá koma þeir bara aftur og aftur!!! Þetta er bara eitthvað sem ég þoli ekki, og ég er ekkert ein um það því að hún móðir mín er svona líka og hún var að upplýsa mig um það í morgun að á Grænlandi búa engir geitungar og hvort mér finndist ekki sniðugt að flytja bara þangað!! NEEEI... Ég held bara ekki þar sem að hún upplýsti mig einnig um það að þar eru hins vegar svona moskító flugur sem að sjúga úr manni blóðið... Ég á nú ekki það mikið blóð til vara að ég geti farið að búa í þannig umhverfi, hún mamma fræddist einmitt um þetta í útvarpsþætti í morgun, og líka það að holugeitungar svo kallaðir þeir ráðast á mann innan klæða þannig að þeir fljúga inná mann og stinga svo bara endalaust... Enda lenti hún mamma mín einmitt í einum slíkum þegar hún tók upp á því að setjast á bekk einhvers staðar og bara flaug svona kvikindi inná pilsið hennar og stakk hana einum 7 sinnum!!! Þvílíkt skemmtilegt NOTT!!!!! En nú tölum við um skemmtilegri hluti, vikan er búin að vera fín hjá mér, náttlega stutt vika og allt það og búið að vera alveg mjög fínt sko! ;D Enda leikskólinn við hliðina á rólóinum mínum að opna í þessari viku og talsvert minna að gera hjá mér en ella... :D Já, svo núna í gær var ég alveg mjög fyndin í vinnunni, því að það hringir í mig í vinnuna nágranni minn sem hafði komið með strákana sína á róló og bað mig um að kippa þeim bara með mér, ég náttúrulega sagði þetta bara ekkert mál og lét strákana vita af því að þeir ættu að vera samferða mér heim, jújú, svo er ég að læsa og þá spyr mig 9 ára gömul stelpa hvað ég sé gömul... Og í eitt af þessum fáu skiptum var ég snögg að hugsa og svara að ég sé 45 ára... Hún náttúrulega trúði mér ekkert sko!! Svo að ég segi jú víst, ég á þessa tvo stráka þarna, og bendi á nágrannana... En hún trúði mér samt ekkert, svo að ég kalla á strákana og spyr hvort að við eigum ekki að fara að drífa okkur heim og þeir náttúrulega bara jújú, ok... :D Stelpan varð svo hissa að það var alveg fyndið og svo hafði ég ekkert samviskuna í að ljúga svona að barninu svo að ég sagði henni að ég hefði auðvitað verið að gabba! :P Skemmtilegt svona, en annað var það að drengirnir nágrannar mínir voru svona líka svakalega hneykslaðir á mér að ég ætti ekki bíl og voru sko ekkert að nenna að labba heim! :D Það fannst mér alveg einstaklega skemmtilegt! :D En já, á fimmtudaginn kom maðurinn á kokteilsósubílnum í heimsókn til mín og var það bara þónokkuð skemmtilegt, og í gærkvöldi fór ég og heimsótti hann og við fórum síðan á kaffihús með vinkonu hans og hittum svo síðan slóst systir mín á ská í hópinn og var þetta bara fínasta kvöld svona fyrir utan það að ég var svona aðeins sloj, en jújú, viti menn!! Eg vaknaði bara VEIK í morgun, með hita og alles... Er þetta ekki týpískt!!! Svo líka kannski þónokkuð líkt mér því að það er búin að vera að ganga pest uppá róló og ég hef bara ekkert fengið hingað til og var svona eiginlega smávegis að furða mig á þessu, þangað til í morgun!! ;) En þetta er bara svona þetta líf og ég held að ég jafni mig alveg :) Ömm... Já, ég hef það ekkert smá fínt í nýja fína herberginu mínu... Sem er alveg svakalega gott sko! :) Og þá held ég að ég sé bara búin að tæma núna :P Hef bara ekkert fleira að segja :D Hafið það bara gott og allir að hafa samband ;) Okidoki ;) Bæjó! :D

mánudagur, ágúst 04, 2003

HVAÐ ER MÁLIÐ??

Jáhá! Nú er ég sko ekkert alveg nógu ánægð... Titillinn á blogginu mínu hvarf!! Já, ég er hætt að vera reið, sáuði þetta??Þetta var alveg hreint undravert hröð þróun!!! :D En allavega... Verslunarmannahelgi... Já, merkilegt, ég fór ekkert út úr bænum, enda svo ofsalega hrifin af því að fara ekki út fyrir bæjarmörkin!! ;) En allavega á föstudaginn var stuð, Krúttið kom til mín í heimsókn að sjá litlu yndislegu dúlluvoffana sem ég er að passa héddna... Og svo fór hún og Nóttin kom til mín og við tókum 60's dansmaraþon í stofunni heima hjá mér...! :D Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt og við höfum alveg ÖRUGGLEGA brennt nokkrum kaloríum og svona ;) Bara betra sko!!! :P Já, á laugardaginn mætti vinur föður míns með fyrrverandi skotið mitt hann son sinn í heimsókn, og var það bara ekkert smá skemmtilegt þar sem ég hafði svona eiginlega aldrei þorað alminnilega að tala við þennann mann sem ég var svo skotin í fyrr en þá og er hann bara ekkert smá skemmtilegur!! :D Fyndið ;) Svo kom Nóttin til að sjá manninn og mamma mín kynnti hana sem sko, "dóttir mín á ská"!! :D Vakti þetta alveg óhemju mikla kátínu hjá okkur og við hlógum mikið! :D En ég hló líka mikið þegar "systirin á ská" hringdi í mig til að láta mig vita að hún væri að koma... Svona hljómaði það:
Ég: "Halló?"
Hún: "Hæ, ég verð að koma og skila þér... Einhverju...."
Ég: "Ha?"
Hún: "Já, bara bókinni þinni eða eitthvað!"
Sko, EÐA EITTHVAÐ... Soldið augljós í því hver tilgangur heimsóknarinnar var ;D En það er bara í fínu lagi, enda alltaf gaman að sjá hana ;) Svo fór Byfíin á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og hringdi í mig í gærkveldi þegar ég var stödd í bíó og tilkynnti mér það að hún hefði hvorki meira né minna rekist á gamla góða fjarlægðarskotið mitt!!! (Sem er náttlega LÖNGU liðið undir lok ;)) Og ég náttúrulega bað hana um að skila kveðju frá mér!! Og jújú, það gerði hún líka! :D Hahha... Og hann bara jájá, sömuleiðis, og svo bara hringdi hún í mig seinna um kvöldið og ég bara spjallaði ögn við kauða sem var alveg ótrúlega athyglisvert, og nú er bara að bíða með krosslagða fingur að vona að maðurinn hafi verið nógu drukkinn til að muna ekkert hvað hann var að segja við mig! ;) Já, annars er það svo bara vinnan í aðsigi í tvær vikur enn og svo fer bara skólinn að byrja, með öllum sínum skemmtilegheitum... :P En það er bara svo margt til að hlakka til!! :D Menningarnótt er til dæmis um þar næstu helgi og svo náttlega Foo Fighters mar!!! :D Það er alveg allt að ske sko ;) En nú ætla ég að hætta þessu þvaðri, enda búin að vera svaka dulleg að skrifa núna :P Heyrumst og sjáumst!!!! :*

P.S. Sko, þessi "jeg" má alveg gefa sig fram bara við mig?? ;) Mér leikur forvitni á að vita hverjum þykir svona vænt um mig, þó svo að ég sé með grunaða manneskju sem ég ætla nú ekkert að gefa upp í bili :P Bæjó! :P