Fjas og fleira ;)

föstudagur, febrúar 21, 2003

Jáhh... Þetta er nú ekkert smá, það nennir líklega enginn að kíkja á þessa síðu einu sinni því ég er farin að skrifa svo sjaldan, en það er alveg hryllilega mikið að ske akkúrat núna, vona að það fari bráðum að hægjast aðeins um svo ég geti skrifað aðeins oftar... ;) En já, í gærkvöldi var árshátíð hjá skólanum mínum og það var alveg svaka stuð sko, skemmti mér svakalega vel :D En er jafnframt svona frekar mygluð í dag... :P En það er bara allt í lagi þar sem ég þarf ekki að fara út fyrir hússins dyr í dag og get alveg slappað af! ;) En já, það var alveg svaka stuð á mannskapnum á þessu balli og ágætis mæting bara... :) Ég og Byfí fórum labbandi hvern hringinn á fætur öðrum en fundum enga sérstaka stráka þó svo að ég hafi nú reyndar heilsað upp á strák sem ég kannaðist við, en það var bara svona hæ og bæ dæmi sko!! ;) Já, allt í allt var þetta bara fínasta ball og ég skemmti mér alveg konunglega... En er líka með þvílíka verki í löppunum að það er ekki einu sinni fyndið sko... :S En það lagast allt með tímanum ;) Grær áður en ég gifti mig... Vonandi! :D Hahhahha.. :D Já já já... Þetta er sko skemmtilegt... Svo eru búnir að vera lagningardagar í skólanum og maður er búin að sækja þá eftir bestu getu, en ég nennti nú ekki að fara að dratthalast í skólann í dag svo að ég skilaði mætingarblaðinu mínu í gær ;) Sniðugt :P Svo var nú líka Gettu betur í gær þar sem skólinn minn sigraði og ég var nú ekkert smá ánægð með það og fór meira að segja í Vetrargarðinn í Smáralind til að styðja mitt lið... Það var sko stemning þar skal ég segja ykkur! :D En já, Hehh.. Svo að ég skjóti hérna inn í einni af mínum frægu hrakfallasögum því ég er nú einu sinni þekkt fyrir það að vera all svakalegur klaufi þá var ég á leiðinni á Gettu betur í gær í strætó og var nú eitthvað aðeins annars hugar, svo ég er eitthvað að glápa út í loftið í strætó og fór alveg óvart einni stoppistöð of langt og varð að labba svolitla leið til að komast í Smáralindina, svo ég var að labba soldið hratt, nema það að í sama strætó var svona ekta "nörd" með svona skálarklippingu og kringlótt Harry Potter gleraugu sem fór út á sama stað og ég og labbaði sömu leið og ég inn að Smáralind, nema bara AÐEINS á undan mér og ég held í alvöur að grey strákurinn hafi verið orðinn hræddur um að ég væri að elta hann því hann var alltaf að líta við svona skelfingar augnarráði eins og ég ætlaði að fara að berja hann eða eitthvað... Ég sem er svo meinleysisleg skildi auðvitað ekkert í þessu og hélt bara áfram og svo fer hann inn í Smáralind og ég á eftir honum og við löbbuðum NÁKVÆMLEGA sömu leið inn í þetta undurfagra hús og rakleiðis inn í Vetrargarðinn þar sem Gettu betur er staðsett og viti menn hann fer beint og sest niður hjá e-m svipuðum gaurum MH megin í salnum... Síðan þegar keppnin var búin þá hraðaði ég mér út á stoppistöð því að nú varð ég að koma mér heim til að gera mig reddí fyrir ballið og hver er að bíða eftir strætó nema sami gaurinn og hann horfði aftur svona skelfdur á mig!!!!! Síðan fer ég bara heim í mesta sakleysi og svo kemur að því að við skellum okkur á ballið og fyrsta manneskja sem ég sé þegar ég kem inná ballið VAR SAMI NÁUNGI!!!!!!!!! Ótrúlegt og hann rauk til og forðaði sér bakvið einhvern gaur um leið og hann kom auga á mig... Þetta var alveg stórfurðulegt... :D En nú jæja.. Þá er ég búin að deila þessu með þeim fáu sem nenna að lesa þessa vitleysu sem ég er að bulla hérna, ég skrifa aftur um leið og ég get... ;) Bæ í bili!!! :*

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home