Fjas og fleira ;)

sunnudagur, júlí 25, 2004

Jáhh... Einmitt það! ;) Ég er alltaf jafn löt :$ En jæja, það er bara svona stundum... Ég er bara búin að vera að njóta lífsins, sumarið er tíminn og allt það! :D Næturlífið í Reykjavík búið að vera skoðað gaumgæfilega og margt skrautlegt fólkið orðið á vegi manns... En er það ekki bara flott?! :D Svo bara er maður að kynnast nýju fólki all the time og skandalera kannski smá öðru hverju... En hver gerir það ekki?! :P Litla vinkonan hélt uppá tvítugsafmælið sitt á föstudaginn og það var bara ekkert smá gaman að kíkja til hennar sko... Og svo var haldið niður í bæ eins og vaninn hefur verið og það var ekkert smá mikið stuð... Í gær kíktum við svo aðeins í bæinn og ég skemmti mér bara þónokkuð vel sko... Svo er næsta helgi verslunarmannahelgin og ég verð að viðurkenna að ég er að taka þessu soldið öðruvísi en flestir því að ég er ekki að fara til Eyja eins og sumir eða Akureyri eða eitthvað... ONEI, ég verð í bænum... Að hlaða batterýin bara... :) Reyndar stafar það ekki af því að ég nenni ekki að djamma um verslunarmannahelgina heldur er bara svo mikill peningur sem fer í þetta að ég hef ekki alveg efni á því að fara í stuðið! ;) En það er líka alveg allt í lagi, ég held ég sé að verða búin að djamma fyrir næstu 10 árin uppá síðkastið... :P En já, það er allt í lagi... :D BARA gaman ;) En ef þið verðið í bænum um verslunarmannahelgina þá bara verið í bandi... Ég er alltaf hress... Svo ef þið eruð að fara eitthvað út á land megið þið endilega líka vera í bandi og leyfa mér að heyra stemninguna... :P Alltaf til í það! :D Hahha... :D En já, ég ætla ekkert að vera að hafa þetta neitt lengra, ég bara reyni að skrifa meira síðar! :P Hafið það gott! ;) Bæbæbæbæbæbæbæb :P

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home