Fjas og fleira ;)

miðvikudagur, október 25, 2006

Jæja, þá er komið að því að ég skrifa aftur ;)

Þeir sem mig umgangast svona reglulega vita það að ég er búin að vera alveg ótrúlega lengi með þrálátan hósta og í gær þegar ég fór veik heim úr vinnu þa ákvað ég að nú skyldi ég koma mér til læknis og láta athuga þetta allt saman... Var farin að hafa áhyggjur af því að það væri einhver skítur kominn í lungun í mér, en það var sem betur fer ekki. En hins vegar er ég búin að vera að þjást af þrálátri barkabólgu sem er komin niður í lungnapípurnar þannig að ég varð að fá púst og á að nota það næstu tvær vikurnar til að ná þessu úr mér... Og látin vera heima í dag og verð heima á morgun líka... :S Þoli ekki að hanga heima þegar maður veit að það er fámennt í vinnunni og svona... En það er víst betra að vera heima í tvo daga en kannski að láta sér slá niður og vera frá í viku eða eitthvað slíkt... :)

Í gærkvöldi var ég bara róleg og var að horfa á sjónvarpið niðri í sjónvarpsherbergi í rólegheitum, svo var mér svo hræðilega kalt klukkan hálf tíu að ég ákvað að skella mér upp og setja hitapoka á tásurnar mínar, ætlaði að leggjast bara útaf þangað til mér væri orðið hlýtt, en neinei, haldiði ekki að ég hafi bara SOFNAÐ! Alger lúði, í öllum fötunum og alles, ekkert búin að nota pústið mitt eða neitt!! :/ Nema hvað að ég vaknaði klukkan hálf þrjú í algeru hóstakasti og klæddi mig í náttföt, burstaði tennur og tók pústið og svo sofnaði ég bara eins og engill... Það var reyndar bara fínt, gott að hvílast vel ég er búin að sofa svo illa með þennan ljóta hósta...

Nema hvað ég er búin að vera heima í allan dag og þá náttúrulega notar maður tækifærið og reynir að svona koma sér inn í hvað er að ske í fréttunum og svona og þá fór ég að lesa um þessi óhugnalegu nauðgunarmál sem eru að koma upp í miðbænum núna... Það er sko greinilegt að maður á að passa sig á þessum bæjarferðum og ALLS ekki vera ein á ferð. Þetta er þvílíkt hrikalegt að hugsa til þess að þetta sé að gerast aftur og aftur og einstaklingarnir sem eru að fremja þessa glæpi eru varla að fá nokkra teljandi refsingu fyrir það sem skaðar þá sem fyrir þeim verða fyrir lífstíð. Maður á engin orð til að lýsa því hvað þetta er hrikalegt...

En jæja, ég ætla nú að hætta þessu og óska þess að allir eigi ánægjulegt kvöld :) Veit að ég ætla að sitja í sófanum og horfa á sjónvarpið, eins æsispennandi og það hljómar :)
Þar til síðar...

2 Comments:

At 9:03 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Góðan bata Karólína mín;)

Eins og ég hef stundum sagt, þá þarf maður að óttast Borg óttans!!!

En já verð í bandi, farðu bara að prjóna eitthvað fallegt í veikindafríinu þínu, blessó Hafrún

 
At 9:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

oh hvað er gaman að þú sért farin að blogga aftur, bjargar mér sko alveg hérna í danmörkinni!! ;)

leiðinlegt með veikindin aftur á móti :(

hlakka ÓLÝSANLEGA mikið að sjá ykkur Önnu núna á föstudaginn sæta mín... you have NO idea! :P heheh...

take care og láttu þér batna :)

sé þig á föstudaginn skvís!!!! :D

 

Skrifa ummæli

<< Home