Fjas og fleira ;)

miðvikudagur, nóvember 05, 2003

Júbb... Mætt í sögu, stuð & fjör hér á ferð... Já, það hefur ýmislegt á daga mína drifið upp á síðkastið, hélt upp á ammilið mitt ásamt Byfí og var það alveg massa stuð sko! :D Fjör á bænum þá, en við héldum þetta heima hjá mér og fjölskyldan var sett á hold niður í sjónvarpsherbergi á meðan! ;P Góð með mig, en mamma og pápi voru alveg mjög sátt við hvernig þetta allt saman fór, enda var fólkið svo dullegt að sulla ekkert eða vera með sóðaskap að það eina sem þurfti að gera var að fleygja plastglösunum og ganga frá skálum sem voru undir nammi, og þá var barasta eins og ekkert ammili hefði átt sér stað!! :D Það var bara nokkuð góð mæting og allir skemmtu sér rosalega vel og þar á meðal ég sem skemmti mér alveg SÚBBER vel! :D Gaman gaman gaman!! ;) "Rúntgaurarnir" mættu á svæðið og voru bara svona líka skemmtilegir, það kom alveg skemmtilega á óvart og ég lærði soldið nýtt um dúkkuhúsið í garði nágranna míns! :D Gaman að því!! :P Svo voru nú reyndar þeir sem komust ekki, af misgóðum ástæðum og það var bara allt í lagi.. Þeir bara misstu af. :) Svo á sunnudaginn eftir herlegheitin var mín bara komin með alveg horrible hálsríg og læti og ég get enn þann dag í dag ekki hreyft alminnlega á mér höfuðið... Ekkert mjög skemmtilegt... :S Svo ákvað ég að skella mér í það að gera blessaða íslenskuritgerðina og var pápi minn alveg ótrúlega góður að hjálpa mér að finna heimildir!!!!!! TAKK FYRIR ÞAÐ!!! :* Enda hefði ég ALDREI verið búin með hana fyrir réttan tíma án hjálpar... En ég byrjaði á ritgerðinni klukkan hálf þrjú og var búin klukkan 2 um nóttina... Þá búin að sitja næstum 12 tíma að skrifa og vitna í heimildir og vera proffi, algerlega stíf í hálsinum og næstum hungurmorða!!! :/ Þetta var semsagt ekki besti dagur Hringlunnar til þessa... ;) Á mánudaginn gerðist afar fátt, enda var ég svo óendanlega þreytt að það hálfa hefði verið mikið meira en nóg! :/ Nema það að Byfí kom til mín að sækja gosið sitt og við opnuðum "fortune cookies" sem hún kom með á laugardaginn og við gleymdum algerlega að opna... Jú jú, Byfí fékk þessa líka fínu speki :Your love life will be happy and harmonious! OG HVAÐ fékk ég??? Ignorance never settles a question! :D Sneddý!! ;) Í gær skellti ég mér í Þjóðleikhúsið að sækja blessaða leikhúsmiðana fyrir mig, Byfi og Iglesias og í miðasölunni er svona gler með lúgu sem fólk á að tala í gegnum, nei nei, það var kall á undan mér að sækja miða sem að stakk bara hausnum GEGNUM lúguna, svipurinn á konunni var alveg óborganlegur, svo fer hann að spyrja hana um miðana og svona og klikkti svo út með að segja: Ég þarf að fá að stitja svolítið nálægt sviðinu, ég sé nefnilega svo illa... :D:D:D Konan reddaði því náttúrulega svona alveg við það að fara að hlæja og ég átti svona frekar bágt með mig að hlæja ekki að grey manninum, enda var þetta að hluta til svo fyndið af því að hann var ÖRUGGLEGA yngri en pabbi minn og svo var hann ekkert með gleraugu eða neitt svona til að hjálpa til sjóninni! ;) Skemmtilegt atvik þetta, en ég skellti mér í sama bíltúr með pápa mínum í Bónus í Kjörgarði, sem sumir vita líklega að er á laugarveginum, nema hvað að þarna inni er svona líka afskaplega myndarlegur maður, svo er ég svona að fylgjast með þessum gaur, svona kíkja hvað hann væri að kaupa og svona... Svo fór pápi að ná í franskar karrtubblur, og hvað gerist AKKÚRAT þegar pabbi snerist á hæli og brokkaði burt?? Jú jú, gæjinn bara DATT kylliflatur á gólfið!!!!!!! :D ÞÁ held ég að hafi verið erfiðasta stund lífs míns að reyna að hlæja ekki!!!!!!!! :D:D:D En hann stóð upp alveg ELDrauður í framan og skellti sér á einn 1944 rétt og fór! :D Svo var ég bara boðin í mat hjá Nóttinni í gær, ótrúlega fínt og gaman!!! TAKKITAKKITAKK!!!!! :* Og nú er ég stödd hér í gúddí fílíng í sögutíma að gera ekki neitt og barasta þó nokkuð stolt af því! ;) En ætli þetta sé ekki alveg komið gott hjá mér núna, ætti kannski að koma mér í það að líta á söguna...??? Nei nei, bíð bara eftir að tíminn verði búinn ;) Bæ í bili :P

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home